Saturday, May 4, 2013

8 mánuðir ✔

Bonjour!
http://www.youtube.com/watch?v=lmCwsF_2eBE
Þetta lag á svo vel við næstu tíma hérna í la France!

 Δ Δ Δ Δ Δ Δ Δ Δ Δ Δ

Þá er komið að næst síðasta blogginu frá mér hérna í París!
Veit ekki hvort ég eigi að hlæja eða gráta..
 Δ
Núna eru 8 mánuðir liðnir frá því ég kom hingað til Parísar. Ég vil ekki trúa þessu, ég kom hingað í gær að mér finnst og núna er ævintýrið bara á enda. 
En það hefur ótrúlega margt gerst frá seinasta bloggi sem var reyndar fyrir þremur mánuðum en betra er seint en aldrei. 


Núna eru allir hættir að kalla mig Lolu og ég heiti Gudji í staðin!

Mais alors, Belgique!

Ég tók síðustu vacances með stæl og skellti mér ein til Brussels í heimsókn til Kötlu minnar frá föstudegi til mánudags (08/03/13-11/03/13)
Það var yndislegt að hitta Kötlu og fjölskyldu sem eru í raun fjölskylda mín númer 2 þannig að ég skiptineminn svindlaði smá :D 
      Brussels var síðan algjört æði og ég gæti alveg hugsað mér að eiga heima þarna!!
 Annars einkenndist þessi heimsókn af mikilli hamingju, næturlífi, rigningu, bestu belgísku vöfflum sem ég hef smakkað á ævinni með jarðaberjum & nutella, túristadegi miklum, göngutúr út um allan miðbæinn og að lokum verslunarleiðangri.
(Ég asnaðist nú samt til að týna myndavélinni minni svo ég náði bara að taka mynd síðasta daginn þegar hún fannst loksins).

                                                                                     Δ
MY SISTER FROM ANOTHER MISTER

MA BELLE

KATLA AND HER HOME
BELGIUM.

BRUSSEL BABY


Roadtrip:
Svo þegar ég kom heim frá Brussels þá fór ég með maman, papa og Violette til Normandie, Saint Malo, Bretagne og fleiri skemmtilegra staða í Frakklandi. Það var ekkert smá gaman, við gistum á hóteli í 2 eða 3 nætur án Internets, reyndar mér og Violettar til mikillar gleði. Violette reyndi að tala á skype við kærasta sinn úti í garði kl. 6 um morguninn því að hótelstjórinn sagði að það virkaði bara þar en svo reyndist ekki.. Glatað!
En það kom ekki að sök því þarna á hótelinu var BAÐKER!! Já þið heyrðuð rétt, baðker!!!!
Hérna heima í France þá eru bara sturtur svo
Holy sweet mother of god ég varð vandræðanlega ánægð & held að ég hafi legið í því í 1-2 klst!
SAINT MALO 

NORMANDIE

SAINT MALO


UPSTAIRS IN LE MONT SAINT MICHEL
LE MONT SAINT MICHEL. 

                                                  SKÓLINN:
Skólinn gengur bara vel, ég er farin að skilja allt miklu betur en hef reyndar lítinn sem engann áhuga á að gera verkefnin í sögu og stærðfræði. Geri öll hin fögin en þetta er bara vesen. Samt eru akkurat kennararnir í þessum fögum alltaf að reyna láta mig læra eins og hina og taka próf og allt en ég verð alltaf jafn ''hissa'' þegar ég mæti og kennarinn tilkynnir að það sé próf. Úbs..
Mjög sniðug, stærðfræðikennarinn minn sem var kona var reyndar hætt að mæta í skólann og ég og bekkurinn minn vorum ekki búin að mæta í stærðfræði í 3 vikur en síðan var ráðinn annar kennari sem er karl og heitir M. Fabre. Hann er ekkert smá indæll og hefur líka svona mikinn áhuga á að kenna MÉR stærðfræði.. Voðalega gaman, sit kannski inní stofu og hann hrópar yfir allan bekkinn og segir: Skilur þú þetta Guðbjörg?? Og ég bara jájá svo hann fari nú ekki að útskýra allt í döðlur en það endar reyndar alltaf þannig. Mér fannst reyndar bara betra að hafa hinn kennarann því við gerðum ekkert og hún gerði engar kröfur til mín heldur. En ætli maður verði ekki að byrja að mastera franska stærðfræði svona þegar líður að lokum...


SCHOOL PROJECT

Ég bý hérna í Brunoy sem er 20 km. frá miðborg Parísar eða það tekur sirka 15 mínútur að taka metro og aðeins lengri tíma að keyra útaf traffík. Mér finnst ég vera ótrúlega heppin með staðsetningu því að ég get labbað í nánast allt. Það er svona lítill krúttlegur miðbær hér með apóteki, sundlaug, bakaríi, ostabúðum, veitingastöðum og svona öllu hinu nauðsynlega og síðan risa skógur sem eru margir kílómetrar hér í 5 mínútna fjarlægð. Ég var farin að fara út að hlaupa á hverjum degi með hundinn í skóginum og allt farið að ganga þvílíkt vel, þolið og tímalengdin lengdist með hverjum deginum sem leið nema hvað eitt skiptið  í lok apríl þegar ég fór í einn túrinn þá var ég væntanlega með Bosco í bandi og hann sá aðra hunda í eitthverjum garði og stökk svona til og ég ekki tilbúin og missteig mig svona illa. Ég gat ekki stigið í fótin og datt í jörðina. Síðan var eitthver svona 3 ára krakki með duddu að horfa á mig eins og ég væri veit ekki hvað í eitthverjum öðrum garði þarna rétt hjá. Ég haltra síðan heim því að maman og papa skruppu til Nice í nokkra daga svo það var enginn heima en þetta reddaðist allt. Í staðin fyrir að labba í 5 min. heim urðu þetta 25 min. Þau komu síðan heim frekar seint um kvöldið og ég að drepast hérna heima. En svaf síðan með systur minni og maman fór með mig uppá slysó
morguninn eftir. 
Læknirinn sem ég fékk var ekkert smá flottur, hann var með sleeve (tattoo út um allar hendurnar) og tunnel (risa eyrnalokka sem var á stærð við vínber í eyranu). Hann sagði mér að hann hafi farið til Íslands í 2 mánuði í mótórhjólaferð í kringum landið með eitthverju gengi fyrir nokkrum árum.
Ég verð alltaf jafn hissa þegar eitthver sem ég hitti fer eða hefur farið til Íslands og að vinur minn hafi þekkt Of monsters and men og vissi að þeir voru íslenskir!!
Samt finnst mér ótrúlega margir frakkar sem ég hef hitt hafa farið til Íslands.
LOCATION

BOSCO 


Það eru búnir að koma nokkrir ekkert smá góðir dagar með 25° hita og sól. Þá förum við systur í bikiníin með ís, ávexti, tónlist & tönum allan daginn. 
Þetta er bara byrjunin og ég get ekki beðið eftir ekta heitu sumardögunum hérna sem fara koma von bráðar!
Þá verður líka farið í miðborg Parísar og allt gert. 
BREAKFAST WITH MES BELLES.

Annars hafa síðustu mánuðir verið frábærir og ég er búin að njóta mín ekkert smá og kynnast helling af nýju fólki. Mér finnst ég bara vera orðin ein af fjölskyldunni. 
Það verður ekkert smá erfitt að fara og kveðja alla í júlí. En núna þarf maður bara að njóta þessa tveggja mánaða sem eftir eru og taka þá með stæl og búa til fleiri ógleymanlegar minningar.
Δ

moi et ma belle 
& ALE
SKYPE-DATE WITH MY BEAUTY

SKYPE-DATE AVEC MES BELLES!! 
MY PIANOMASTER ON SKYPE
ME THIS MORNING WRITING THIS BLOG WITH MY BEST FRIENDS THESE DAYS.. BEN AND JERRY'S

HELLO BOYS

Núna er ég búin að vera í tveggja vikna fríi og á eina viku eftir. Ég hefði bara átt að vera í 2 vikur í fríi en útaf tognuninni þá var ég bara heima í sólbaði og að horfa á sjónvarpið í eina viku áður meðan allir aðrir voru í skólanum. Það voru ljúfir tímar get ég sagt ykkur! Svo klára ég skólann í kringum 10. júní og þá verð ég bara í sólbaði og í París til skiptis að versla og hafa gaman. En annars hef ég ekkert ákveðið nema ég veit að ég fer aftur til Normandie með Manon, Violette og helling af stelpum í sumarhús þar í viku við ströndina í kringum 20. júní!
2 MONTHS UNTIL I GO HOME :(
 Δ Δ Δ Δ Δ Δ Δ Δ
Au revoir er farin að versla!
Guðbjörg Einars ✘o✘o

 Δ


Sunday, February 3, 2013

5 mánuðir ✔


Að fara að tala á skype-fyrirlestri í Vestmanneyjum.
Bonjour tout le monde!
 

Vandræðanlega fljótt að líða!
Núna eftir tvo daga er dvölin mín hálfnuð (5/10). Hvert flýgur tíminn eiginlega spyr ég nú bara? Þetta er ótrúlegt en ég er mjög sátt með að þetta líði svona hratt því ég hlakka ekkert smá til að koma heim og hitta alla en á eftir að sakna elsku Parísar og fjölsskyldunar minnar ótrúlega mikið líka.

Tók þessa á stórri byggingu sem ég man ekki hvað heitir.
Síðustu vikur:
En á þessum fimm mánuðum hef ég þroskast ekkert smá mikið & fundið sjálfa mig eitthvernveginn. Ég veit þetta hljómar frekjar klisjukennt og fáránlega en svona er það bara! Þessir fimm mánuðir hafa reyndar verið ekkert smá erfiðir á tímabilum en þvílíkt lærdómsríkir, krefjandi og skemmtilegir! Er búin að taka smá svokallaðann ''skiptinemarússíbana'' en það var fyrir kannski tveimur mánuðum & í eitt skipti. En það er bara partur af reynslunni, finnst það reyndar aðeins fyndið eftir á. Grenjandi yfir ekki neinu því að mér fannst ekkert vera að ganga upp, en þá þýðir ekkert annað en að rífa sig upp, hætta að væla og gera eitthvað í málunum.

Get ekki beðið eftir að koma heim í sveitasæluna!
Alltaf á Þriðjudögum er ég búin 09:30 og þá ferð ég í Monoprix og kaupi mér Oreo-ís á eina evru.
Fyrsta ástin í lífi mínu, lýg því ekki að ég sé að fara fá mér lítið Eiffel tattoo við tækifæri.
Þetta ógeð eltir mig. Hefur ekki snjóað svona mikið í París í mörg ár.
og bestu

David kom í 5 vikur en hann er kærasti Violettar systur minnar. Hann var yndislegur og við urðum ekkert smá góðir vinir á þessum stutta tíma, finnst hann vera svona eins og bróðirinn sem ég átti aldrei. Hann sléttaði alltaf á mér hárið, við rifumst endalaust, hlógum líka af eitthverju óeðlilega fyndnu sem átti sér stað hérna í France. Tökum það sem dæmi þegar við fórum í fyrsta partýið sem var í Yerres. Við vorum ekki búin að vera þarna nema í korter þegar hellingur af fólki bankar og kemur inn. (Og í Frakklandi þegar þú ferð í partý þá þarftu að kyssa hvern einasta þarna inni tvo kossa á kinnina og bara ef þú ert ''stelpa''). David var greinilega eitthvað alveg að misskilja og þegar einn tvítugur strákur kemur að honum og ætlar að gefa honum svona franskt ''handshake'' eins og allir strákar í Frakklandi gera þá bara kyssir David hann tveimur kossum á kinnina og gaurinn bókstaflega fraus. Ég hélt ég myndi deyja úr hlátri og þá kallaði eitthver ''hann er frá Nýja-Sjálandi''x5. Hann var alltaf að lenda í einhverju svona vandræðalegu hérna, á svona milljón sögur og finnst ekki leiðinlegt að minna hann á þær! En í tilefni þess að hann var hér þá fórum við svona 15 sinnum til miðborgar Parísar og gerðum helling af hlutum. Til dæmis:
 Eiffel Tower að kvöldi til (hann glansaði á meðan), Notre Dam, Champs Elysees, Rue du rivoli var gengin upp og niður nokkrum sinnum, Einkapartý í Les Invalides, Wissant sem er lítið sjávarþorp rétt við Englandsstrendur, Cathédrale brúin og ég gæti talið endalaust upp aðra fleiri glæsilega staði í París.
útsýni úr Eiffel!
 Jól & frí.

Jólin komu og fóru. Þetta var mjög skemmtilegur tími en ekkert smá öðruvísi.
Á Þorláksmessu varð ég reyndar lasin. Hélt ég myndi deyja! Hafði sem betur fer tvo einkaþjóna sem nenntu að gera allt fyrir mig og mömmu sem bara var og er yndisleg!
24. desember var farið í göngutúr og svo í messu um kvöldið, ekkert jólalegt reyndar og mér leið ekki eins og það væru jól en ég var búin að undirbúa mig fyrir engan aðfangadag þetta árið.
25.desember þá var þetta miklu jólalegra. Um kvöldið opnuðum við pakkana og borðuðum ótrúlega mikið af góðum frönskum mat. Ég held að við höfum verið 11 manns allt í allt. Eftir að hafa tekið einn sopa af rósarvíninu tókst mér reyndar að hella öllu niður á borðið en það var bara fyndið.
           Svo eftir matinn opnuðum við pakkana! Fékk hálsmen úr ekta demöntum frá pabba og mömmu í France sem mér þykir óeðlilega vænt um og tými ekki að nota fyrr en ég kem heim til Íslands til að muna alltaf eftir þeim. Ég var ekkert smá ánægð með allar gjafirnar. Takk allir, þið eruð æði!
Noel aka Jól!
Góð vinkona? Já.







Labbitúr í París.

 Áramótin voru fín líka en allt öðruvísi en þau síðustu sem ég hef upplifað. Ég, Violette, Manon, Ava og David fórum saman í partý sem var reyndar líka í Yerres í heimahúsi. Áður en við fórum borðuðum við pizzu og fórum síðan beint í partýið. Enginn kalkúnn með öllu tilheyrandi eins og á Íslandi með elsku fjölskyldunni minni!!
Mun kunna að meta næstu jól og áramót svo þúsund sinnum meira!
Allavegana þegar við komum í partýið voru þetta semsagt 20 franskir strákar og 1 stelpa. Já ein stelpa sem átti víst kærasta þarna. Stelpur á Íslandi þið væruð ekkert að hata þetta!! okay djók..
Þetta var samt sem áður mjög skemmtilegt partý fyrir utan það að kærustufaggarnir þarna tveir hurfu snemma um kvöldið og þá var það bara ég og strákarnir eftir en ég fékk að spreyta mig aðeins í frönskunni allt kvöldið og lærði ekkert smá mikið í leiðinni.
Við gistum síðan þarna og fórum hress heim daginn eftir. Sá dagur var mjög skemmtilegur. Áramótakampavínið var ekki alveg eins vinsælt hjá sumum eins og það var deginum áður..
 Svo fór ég víst á manifestation mótmælagöngu með pabba sem tók einn Sunnudag. Það var mikil upplifun þangað til ég tók eftir því að ég var að mótmæla brúðkaupi samkynhneigðra. Já ég sem hef ekkert á móti þessu og finnst réttara sagt FÁRÁNLEGT afhverju samkynhneigt fólk megi ekki gifta sig í Frakklandi og eignast börn? Þvílíka ruglið. Ég fór að rökræða við einn sjálfboðaliða á AFS-campinu og er alltaf að rökræða við einhverja sem halda því fram að það sé alveg út í hött að leyfa þessu fólki að eignast börn. Afhverju ekki?? hvað gerir það ykkur elsku þröngsýna fólk.
Því miður gat ég ekki farið á manifestation-göngu til að styrkja hjónaband og ættleiðingu barna hjá samkynhneigðu fólki því ég var á AFS-campi..

Flippkisi með kampavínið!
my fav!

systur mínar
Elska að tala við þessi dýr og get ekki beðið eftir að koma heim til þeirra! 
PS fallegustu á leið á árshátíð MA 

Tilbúin í áramótapartý '12

Janúar og febrúar
Svo fór David 15.janúar og dagarnir eftir það einkenndust af mikilli sorg. Violette og ég lögðumst í dvala í viku og horfðum á Suits saman með mikið af nammi. Þetta gekk örugglega svona í rúma viku en þá tók alvaran við, skólinn. Ég sem hélt að ég þyrfti ekki að læra neitt, sú er ekki raunin, held ég þurfi að taka prófin sem verða núna áður en sumarið kemur. Maman/mamma fór reyndar í foreldraviðtal fyrir mig og madame Pinguet elskar mig og sagði að ég hefði ekkert smá góð áhrif á bekkinn og væri stórkostlegur nemandi. Ég veit ekki alveg hvar hún sér þessa ''svakalegu'' hæfileika en þetta er allavegana jákvætt. Þarf reyndar að læra allt í hennar tímum, um daginn las ég ljóð og flutti fyrir allan bekkinn sem gekk reyndar mjög vel. Næsta verkefni einkennist af því að ég þarf að taka mynd af glasi með vatni í og það þarf að vera geðveikt flott landslag á bak við. Og í vatninu er eitur en þú getur ekki séð það. Gangi mér vel segi ég nú bara. Svo í allri þessari viku er stærðfræðikennarinn minn veikur svo þetta verður klassa vika!
Annars er franskan öll að koma og ég er löngu hætt að nota enskuna. Ég er farin að skilja nánast allt en þarf aðeins að æfa mig í beygingum á óregulegum sögnum.
Get ekki beðið eftir að geta verið með þessum 3 aftur!

Ferskur miðnætur-útsýnispallsjogerísrúntur með mínum nokkrum dögum áður en við fórum allar í sitthvort landið..
hálfsárs fjarveru!

Bara mánuður

Svo í júní fæ ég tvær Frakklandspíur í heimsókn! Svönu og Rakel sem er betur þekkt sem refurinn hér í France.


Þá er þetta komið, bið að heilsa öllum þarna á klakanum og sjáumst í sumar!
Gros gros bisous,

Guðbjörg Einarsdóttir
 
fallegasta tvíburasystir mín!